Rauðhólar.
    <language>is</language>
Rauðhólar
      <description>Hús: Íbúðarhús steypt, byggt 1950. Útihús frá 1953-60.  Jörðin er fremur lítil og land hennar langt og mjótt, innan við km á breidd, nær austan frá innstu drögum Dalsár í yfir 1000 m hæð og þaðan í boga niður að Hofsá. Mörk við Skjaldþingsstaði við Hofsá eru rétt innan við brú og fylgja landamerkjaskurði eftir nesinu upp í fjall. Núverandi ábúendur eiga jörðina.Harðvelli er meðfram Hofsá í nesinu en mýrar ofar. Bærinn stendur í hjalla undir Rauðhólum en í fjallinu er fjölbreytilegur gróður, holt, móar og mýrasund allt upp í skriður og klettabelti Strákatinds (1080 m). Rauðhólar eiga veiðirétt í Hofsá.Steinunn vinnur fullt starf utan bús og Trausti hefur unnið hlutastörf af bæ. Ýmsir leigjendur bjuggu í íbúðarhúsinu 1966-1975, m.a. kennarar á vegum hreppsins.Bústofn er nú 113 kindur. Trausti bjó með hænsni í nokkur ár, mest um 300 varphænur en hætti því og hefur síðan verið nær eingöngu með sauðfé. Fjárflest var 1977-78, í búskapartíð Þorgeirs, um 150 fjár. Loðkanínur voru á búinu í 2-3 ár, flestar um 30.3 dráttarvélar, heyhleðsluvagn 1982, bindivél með Engihlíð 1989, aðrar heyvinnuvélar til þurrheyskapar 1979-91, jarðtætari 1986.Búið er að friða spildu sem e.t.v verður notuð til skógræktar. Árið 1983 sligaðist hlöðuþak undan snjóþyngslum.  ÁBÚENDUR:  1979-....:Trausti Gunnsteinsson frá RauðhólumSteinunn Zoëga frá Neskaupstað (frá 81)Börn: Sveinn Halldór (Neskaupstað) og Eygló (Reykjavík)  Fyrrverandi ábúendur  1975-1979:Guðbjörg Leifsdóttir frá Sævarlandi, ÞistilfirðiÞorgeir Hauksson frá Ytra-NýpiBörn: Þorsteinn og Einar Már</description>